Jæja.. ég er ekki hætt, fór bara í smá pásu
en ég vil samt fá fleiri komment á þetta blogg heldur en á það síðasta
Var í Reykjavík um helgina, fór á föstudaginn um kl 5 og kom í dag um hádegi, var veðurtept og svollis skemmtilegt, átti að koma heim í gærkvöldi
en anyway þá fór ég með flugi á föstudaginn og Hanna kom nottla og sótti mig og svo fórum við heim að elda og svonna, kjúklingafahítas og svo um kvöldið höfðum við bara kósý fyrir framan sjónvarpið
Á laugardaginn var síðan vaknað og tekið sig til í rólegum heitum og svo farið í Kringluna að leita að kjól fyrir mig, vorum komnar þangað eitthvað um 2 og fórum síðastar út held ég bara um kl 6
og ekki með neinn kjól, en samt búin að finna, svona eiginlega
Síðan fórum við bara heim og pöntuðum pizzu og leigðum dvd myndir, fórum heim og átum og horfðum á sjónvarpið og fórum svo að sofa
Á sunnudeginum fórum við Hanna síðan í Smáralind og svo sóttum við Friðný og fórum aftur í Smáralindina, þar keypti ég mér gallabuxur,kjólinn,eyrnalokka,2boli og 4 brækur. Síðan borðuðum við kvöldmat kl 5 á Grillhúsinu því við vorum allar orðnar svo svangar
síðan fórum við heim og lágum á meltunni, ætluðum síðan að fara að fara á völlinn þegar pabbi hringdi og sagði að það vær búið að aflýsa öllu flugi þangað ti morguninn eftir, þannig að við héldum bara áfram að horfa á tv-ið og Friðný var sofnuð kl 8
gaman að segja frá því
Síðan bara var ég að dútla mér í morgun þangað til Hanna sótti mig til að fara á völlinn, ég var komin í loftið kl hálf 12 og heim kl um 12 og komin í skólann að verða 2.
Síðan var ég bara í skólanum, fór í ræktina og svo heim að læra
Þvoði bílana og svo bara að slappa af
Takk fyrir helgina Hanan og Friðný
haha árshátíð 10.bekk
árshátíð 1.bekk í MA
SOltið mikill munur á okkur haha